Um okkur

Stjórn og starfsreglur

Stjórn SHS er skipuð framkvæmdastjórum aðildarsveitarfélaganna sex eða fulltrúum þeirra og jafnmörgum til vara. Fulltrúi fjölmennasta sveitarfélagsins, borgarstjórinn í Reykjavík, er formaður stjórnar. Slökkviliðsstjóri situr alla fundi stjórnarinnar.

552A0596

Helstu verkefni stjórnar eru:

  • Að hafa eftirlit með rekstri byggðasamlagsins og sjá um að lögum, reglugerðum, samþykktum og markaðri stefnu sé fylgt.
  • Að samþykkja áætlun um rekstur, fjárfestingu og fjármál sem síðan er lögð fyrir aðildarsveitarfélögin.
  • Staðfesta brunavarnaáætlun og móta stefnu, framtíðarsýn, markmið og helstu mælikvarða í rekstri SHS.
Hér má finna fundargerðir stjórnar.  

Efni í þessum hluta

Síðast uppfært 28. október 2026