Sjúkraflutningar

Menntun sjúkraflutningamanna

Hjá SHS er mikið kapp lagt á menntun í sjúkraflutningum til þess að kunnátta og hæfni starfsmanna sé eins góð og mögulegt er hverju sinni. Grunnkrafa er iðnmenntun, stúdentspróf eða hafa lokið formlegri menntun sem telst sambærileg í tíma og umfangi. Menntun sjúkraflutningamanna hjá SHS er fjórþætt:

20191203_003711
Grunnmenntun

Nýliðar þurfa að að ljúka grunnmenntun í sjúkraflutningum, EMT-B námi á okkar vegum eða á vegum Sjúkraflutningsskólans. Að náminu loknu getur viðkomandi hafið störf í sjúkraflutningum.

Ekki þarf að hafa lokið EMT-B náminu áður en sótt er um starf hjá okkur þar sem öll kennsla fer fram hjá okkur á fyrstu vikum í starfi.

Námskeiðið er 260 tímar og líkur með bóklegu og verklegu prófi.

Framhaldsnám í sjúkraflutningum

Framhaldsnám í sjúkraflutningum er svokallað neyðarflutninganám EMT-Advanced. Námið er byggt á amerískum staðli og er skipt í 4 lotur, en hver lota er 60-120 tímar. Námskeiðið endar á lokafærnimati sem er úr öllu efninu. Allt okkar starfsfólk fer í gegnum þetta nám á okkar vegum á fyrstu 3 árum í starfi.

Sérmenntun sem bráðatæknir

Hægt er að sækja sér sérmenntunar sem bráðatæknir. Þá menntun sækir fólk sér á eigin vegum. Það nám er yfirleitt á háskólastigi og telur um 30 einingar í bóklegum tímum, 2,5 einingar í verklegum tímum og 15 einingar í starfsþjálfun á kennslusjúkrahúsi. Námið fer til dæmis fram í Pittsburgh og Boston, en einnig hafa nokkrir farið í framhaldsnám til Bretlands og klárað BS próf þaðan.

Árleg sí- og endurmenntun

Við leggjum mikið upp úr sí- og endurmenntun okkar starfsfólks þar sem farið er í helstu nýjungar og eins til að viðhalda þekkingu.

Nemum í heilbrigðisgeiranum býðst að taka vaktir á sjúkrabílum. Hér er hægt að sækja um: https://gestir.shs.is/.

Nánari upplýsingar um menntun sjúkraflutningamanna er að finna á heimasíðum Sjúkraflutningaskólans og Center of Emergency Medicine, Pittsburgh.

Síðast uppfært 28. október 2026