Forvarnir

Menntun eldvarnaeftirlitsmanna

Menntun starfsmanna eldvarnaeftirlits skal vera í samræmi við þá þjónustu sem slökkvilið skal veita samkvæmt brunavarnaáætlun viðkomandi sveitarfélags.

Cut_07 screenshot.00_01_05_10.Still009

Allir sem sinna eldvarnaeftirliti þurfa að hafa lokið grunnnámi. Námið skiptist í þrjá hluta:
  1. Eldvarnaeftirlitsmaður I:  Grunnnám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn þannig að þeir geti unnið við almennt eldvarnaeftirlit. Námið er 70 kennslustundir.
  2. Eldvarnaeftirlitsmaður II:  Framhaldsnám fyrir eldvarnaeftirlitsmenn þannig að þeir geti starfað sjálfstætt að sérhæfðu eldvarnaeftirliti svo sem að annast lokaúttektir. Námið er 30 kennslustundir.
  3. Eldvarnaeftirlitsmaður III:  Framhaldsnám fyrir þá sem stjórna og bera ábyrgð á eldvarnaeftirliti sveitarfélaganna. Námið er 30 kennslustundir.

Síðast uppfært 28. október 2026