Enn bætist í bakvarðasveitina

Sjukrabill2-11.2019-945x385-1
20210504_171917

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn tilheyra nú þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem hafa skráð sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar, enda mikið í húfi fyrir örugga heilbrigðisþjónustu að unnt verði að manna sjúkrabifreiðar komi til þess að sjúkraflutningamenn veikist eða þurfi að fara í sóttkví. Alls hafa um 350 heilbrigðisstarfsmenn nú skráð sig í bakvarðasveitina.

20210624_132124

Bakvarðasveitin var sett á fót 11. mars síðastliðinn þegar útbúinn var skráningargrunnur og óskað eftir því að fólk með heilbrigðismenntun skrái sig á útkallslista í þeim tilgangi að koma tímabundið til starfa með skömmum fyrirvara ef á þarf að halda.