SHS er byggðasamlag sem sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, forvörnum, almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa, enda falli þau að tilgangi SHS og séu ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum. Stofnendur og eigendur SHS eru sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Álftanes.
Starfsemi SHS skiptist í tvö meginsvið, forvarnasvið og útkallssvið, ásamt skrifstofu slökkviliðsstjóra. Markmiðið með þessari skipan er að yfirbygging sé takmörkuð, boðleiðir einfaldar og skýrar og upplýsingaflæði gott.
