Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins varð til 1. júní 2000 við sameiningu Slökkviliðs Reykjavíkur og Slökkviliðs Hafnarfjarðar. SHS er byggðasamlag sem sinnir slökkvistarfi, sjúkraflutningum, forvörnum, almannavörnum og öðrum verkefnum sem stjórn SHS ákveður hverju sinni og varða velferð íbúa, enda falli þau að tilgangi SHS og séu ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum. Stofnendur og eigendur SHS eru sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarneskaupstaður og Álftanes.Stjórn SHS er skipuð framkvæmdastjórum aðildarsveitarfélaganna sjö eða fulltrúum þeirra og jafnmörgum til vara. Fulltrúi fjölmennasta sveitarfélagsins er formaður stjórnar. Slökkviliðsstjóri situr fundi stjórnarinnar. Helstu verkefni stjórnar eru
Slökkviliðsstjóri er æðsti yfirmaður liðsins og stýrir daglegum rekstri þess í samræmi við starfs- og fjárhagsáætlun sem stjórn byggðasamlagsins hefur samþykkt. Í framkvæmdastjórn ásamt honum eru varaslökkviliðsstjóri, sem jafnframt er sviðsstjóri útkallssviðs, og sviðsstjóri forvarnasviðs.