Gerðar eru miklar kröfur til hæfni og þjálfunar þeirra sem starfa á útkallssviði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Það kallar á mikla menntun og þjálfun sem er í stöðugri endurskoðun. Starfsmenn þurfa meðal annars að standast strangar kröfur um líkamsþjálfun og gangast reglulega undir þrekpróf.
Að undangengnu fornámi sem nýliði verður að ljúka áður en hann hefur störf á vöktum hjá slökkviliðinu (að lágmarki 80 kennslustunda skyldunám) og að lágmarki sex mánaða starfsreynslu tekur við svokallað atvinnuslökkviliðsmannsnám, sem tekur 540 stundir og fer eftir námsvísum Brunamálastofnunar. Hljóta menn löggildingu sem slökkviliðsmenn að því námskeiði loknu. Umsjón námskeiðsins er í höndum Brunamálastofnunar. Einnig eru starfsmenn innan liðsins sem hafa hlotið menntun slökkviliðsmanna frá björgunarskólanum í Sandö í Svíþjóð, en það er 14 vikna nám. Þá eru allmargir starfsmanna með stjórnunarnám, sem haldið er í samvinnu við skólann í Sandö, en námið tekur tæpar þrjár vikur, og nokkrir hafa hlotið svokallaða "brandförmän" menntun frá Sandö, en slíkt nám tekur 12 vikur. Nokkrir hafa setið vikulangt vettvangsstjóranámskeið almannavarna.
Þá hafa allir starfsmenn lokið 52 stunda endurmenntun, námskeiði í yfirtendrun, í vinnuferlum reykkafara, í eiturefnum og meðferð þeirra, í skipulagi á vettvangi og námskeiði í meðferð og notkun hitamyndavéla. Einnig hafa allir þeir sem hlotið hafa löggildingu sem slökkviliðsmenn, lokið námskeiði um vinnuvélar.
Menntun hlutastarfandi slökkviliðsmanna
Slökkviliðsmenn í hlutastarfi sækja að meðaltali tvö sjö daga námskeið á ári. Þar er farið yfir aðkomu á bruna- og slysstað. Námskeiðin eru bæði verkleg og bókleg. Slökkviliðsmennirnir fá fræðslu um meðferð á búnaði, slysahjálp, fjarskipti, reykköfun. Þeir fá kennslu í notkun stiga, handslökkvitækja, slanga, stúta og froðubúnaðar.