Slökkvistarf

Slökkvistörf

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnir slökkvistörfum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt lögum um brunavarnir nr. 75/2000 23. maí. Einnig sinnir það aðstoð við önnur slökkvilið í landinu þegar eftir því er leitað, ásamt því að sinna eldum í skipum við land og á hafi úti þegar svo ber við. Slökkvistörfin eru margvísleg og geta verið allt frá litlum bruna í ruslatunnu, yfir í stórbruna sem krefst þátttöku allra stöðva SHS og jafnvel auka mannskaps sem kallaður er út af frívakt.

Slökkvistarf er mjög krefjandi starf bæði andlega og líkamlega, þess vegna eru gerðar miklar kröfur um styrk, andlegt jafnvægi og þekkingu til slökkviliðsmanna.
Verkefnin eru misjöfn, bæði lítil og stór en ávalt ýtrasta öryggis gætt sama hvernig vettvangurinn er því eldur er alltaf varasamur hver sem stærð hans er.
Slökkviliðsmenn standa 12 tíma vaktir og margt getur gerst á þeim tíma. Ef tilkynnt er um eld til neyðarlínu kallar hún út eina eða fleiri stöðvar með tilliti til stærðar og umfangi brunans.

Þó að stórir brunar og eða alvarleg slys eigi sér stað er þörfin fyrir almenna þjónustu áfram fyrir hendi og önnur slys eða brunar geta verið á sama tíma. Til þess að bregðast við þessu kallar slökkviliðið út slökkviliðsmenn af frívakt. Þetta kemur í veg fyrir að þjónusta slökkviliðsins minnki svo mikið að tjón hljótist af þegar mörg og eða stór verkefni eru öll á sama tíma.
En til þess að takast á við þessi verkefni þarf öflugan búnað og tæki. Slökkviliðið er stöðugt að endurnýja og auka við búnað til slökkvistarfa.