Eldurinn kom upp í þvottahúsi á jarðhæð hússins, sem er þríbýlishús, byggt um 1930. Lögregla telur að kveiknað hafi í út frá fjöltengi. Ein íbúð er á hverri hæð hússins og einar útidyr á jarðhæð, við þvottahúsið. Svo heppilega vildi til að íbúar jarðhæðarinnar voru vakandi og urðu varir við reykinn. Þeir gerðu slökkviliði viðvart. Reykur í stigaganginum gerði þeim ókleift að komast út þá leið þó einungis sé um metri frá íbúðinni að útidyrahurðinni og brugðu þau á það ráð að brjóta rúðu til þess að forða sér út. Engin opnanleg fög eru á gluggum neðri íbúðanna, sem snúa út að Mýrargötunni og því einungis ein flóttaleið út úr þeim. Engar svalir eru á húsinu. Íbúar efri hæðanna voru ekki heima, en kona var gestkomandi á miðhæðinni. Hún lenti í sjálfheldu vegna reyksins í stigaganginum og hjálpuðu slökkviliðsmenn henni út með því að setja á hana björgunarmaska.
Brunavörnum getur verið ábótavant í eldra húsnæði, sem byggt er áður en reglugerðir fóru að kveða fastar á um slíkar varnir. Flóttaleiðir geta þá verið takmarkaðar. Því þarf að huga sérstaklega að reykskynjurum og slökkvitækjum, bæði í íbúðum og í stigagöngum fjölbýlishúsa, svo eldboðin berist hratt og vel til íbúanna. Hægt er að samtengja reykskynjara, þannig að ef eldur kemur upp á einni hæð fari skynjarar á öðrum hæðum strax í gang. Gömlum hurðum ætti að skipta út fyrir eldvarnahurðir en þær draga verulega úr líkum á útbreiðslu elds og reyks.
Anna Sigríður Helgadóttir, íbúi á efstu hæð, var fjarverandi þegar eldurinn kom upp. Hún er þakklát fyrir að ekki fór verr. „Við munum endurnýja og fjölga reykskynjurum, bæði í íbúðinni og í stigaganginum. Við ætlum að kaupa slökkvitæki í stigaganginn,“ sagði Anna Sigríður í samtali við SHS. Eftir á að hyggja hefðu þurft að vera reykskynjarar á stigaganginum til þess að boðin bærust hraðar. Ekki væri nóg að vera bara með skynjara í íbúðunum. Hún ætlar einnig að hvetja til þess að húsfélagið safni fyrir eldvarnahurðum. „Svo fæ ég mér brunastiga, a.m.k. kaðalstiga.“
Eins og fyrr segir eru engar svalir eru á húsinu við Mýrargötu 16 og ekki allir gluggar með opnanlegum fögum. Flóttaleiðir eru því mjög takmarkaðar í húsinu, eins og algengt er um eldra húsnæði. Mikilvægt er fyrir eigendur gamalla húsa, þar sem eldvarnir eru takmarkaðar og flóttaleiðum ábótavant, að huga vel að þeim þáttum, því eldurinn gerir ekki boð á undan sér.
Anna Sigríður er mjög sátt við aðkomu allra sem að málinu komu og þá aðstoð og eftirfylgni sem íbúar hússins hafa fengið. „Við vorum afskaplega heppin, það er eins og það hafi verið hnippt í mann.“