Nokkur slökkvilið hafa nú komið til aðstoðar á öskusvæðið. Slökkviliðin á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Hvolsvelli komu að hreinsunarstarfinu í gær og fram eftir kvöldi. Menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Brunavörnum Suðurnesja og Brunavörnum Árnessýslu mættu á staðinn i gærkvöldi og gistu á svæðinu i nótt. Slökkviliðið á Höfn bættist í hópinn i morgun og í dag koma til viðbótar menn og búnaður frá Isavia.
Það eru því sjö slökkvilið komin til aðstoðar með níu slökkvibifreiðar, búnað og um þrjátíu slökkviliðsmenn, auk heimaliðsins á Kirkjubæjarklaustri. Auk slökkviliðana eru tankbílar í vatnsflutningum frá Íslenska gámafélaginu, Mjólkursamsölunni og einkaaðila frá Vík. Samtals flutningsgeta þessara slökkvi- og tankbifreiða er um 100.000 litrar af vatni.