Fréttir
12 janúar 2011
Sinubruni í Vatnsmýri

Allt tiltækt lið SHS barðist í um tvo tíma við mikinn sinubruna í Vatnsmýrinni í gærkvöldi.  Eldurinn kom upp skammt frá Öskju, sem hýsir m.a. Jarðvísindastofnun HÍ, og breiddist hratt út undan vindinum, sem var töluverður.  Brann um fimm ha. óbyggt svæði milli Sturlugötu, Njarðargötu, Eggertsgötu og Oddagötu.  Eldurinn barst hvorki í nærliggjandi byggingar né bíla.  Hætt var þó við því um tíma að bílar yrðu eldinum að bráð.  Íbúar á svæðinu urðu talsvert varir við reykinn og voru hvattir til þess að loka gluggum og kynda vel.  Eldsupptök eru ókunn, en ekki er útilokað að kviknað hafi í út frá flugeldum. 

Slökkviliðið óskaði eftir liðsstyrk frá slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli sem sendi bíl og tvo menn til aðstoðar.  Lögreglan lokaði aðkomu að svæðinu þar sem nokkurn fjölda manna dreif að.  Um 80 þúsund lítrar vatns voru notaðir við slökkvistarfið.  Slökkviliðsmenn notuðu einnig klöppur við slökkvistarfið.  Svæðið var erfitt yfirferðar, þar sem það er þúfótt og á því var mikil sina.

Sinubrunar eru algengir um og upp úr áramótum og er þar flugeldum oft um kennt og óvarlegri meðferð elds.  Veðurskilyrði ráða því svo hvort sinan brennur vel eða eldurinn dreifist hratt.  Sinubrunar eru þó algengastir á vorin og á haustin, þegar kólnar og gras sölnar.  Síðastliðið haust var einkar veðurmilt og gróður hélt sér lengi og er það m.a. talin orsök þess að lítið varð vart sinubruna á haustmánuðum.

Það er jafnframt staðreynd að sinubrunar eru viðkvæmt umfjöllunarefni.  Reynslan hefur sýnt að umræða um sinubruna getur leitt til frekari sinubruna.  Mikilvægt er að almenningur og fjölmiðlar hafi það í huga við umfjöllun um málið.

Þess er gætt hér á höfuðborgarsvæðinu að almenn útivistarsvæði séu vel hirt og dregið úr slysa- og brunahættu eftir megni á slíkum svæðum.  Auð, illa hirt svæði er þó víða að finna hér í byggð og liggur þar töluverð sina.  Það hefur í för með sér umtalsverða áhættu fyrir íbúa svæðisins, dýralíf þess og náttúruperlur.  Mikilvægt er að dregið verði úr hættu á sinubrunum með þeim ráðum sem tiltæk eru, s.s. fræðslu almennings, aukinni umhirðu og öðrum fyrirbyggjandi aðgerðum.

Slökkviliðið hvetur fólk til þess að gæta þess ætíð að fara varlega með opinn eld úti í náttúrunni.  Sérstaklega er fólki bent á að nýta þar til gerð útivistarsvæði, t.d. þegar menn vilja grilla á opnum svæðum, en víða hefur verið komið upp sérstakri aðstöðu til þess.


Prentvæn útgáfa printer