Fréttir
01 mars 2011
Nýir leitar- og björgunarkafarar

Fimmtán starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Ríkislögreglustjóra og Landhelgis-gæslu Íslands útskrifuðust á föstudaginn af námskeiði til B-réttinda kafara, leit og björgun.  Þar með er níu vikna námsferli lokið, en það hófst með inntökuprófum á haustmánuðum. 

Inntökuferlið fyrir kafaranámskeiðið tók tvær vikur.  Þá var m.a. þrek umsækjenda og vatnsvani prófaður og þeir prófaðir í þrýstiklefa með þrýstingi sem samsvarar 50 metra dýpi í köfun.  Umsækjendur fóru jafnframt í læknisskoðanir og viðtöl. 

Námskeiðið sjálft tók sjö vikur og var kennt í tveimur hlutum, sá fyrri hófst í nóvember sl. og sá síðari var í febrúar.  Í millitíðinni stunduðu þátttakendur æfingakafanir.  Kennslan var bæði bókleg og verkleg og sáu leiðbeinendur SHS, RLS og LHG um kennsluna. 

Erling Júlínusson hefur haft umsjón með námskeiðinu:  „Þetta hefur gengið mjög vel, verið mikil vinna og mikil keyrsla.  Hópurinn er góður, mjög sterkur og samheldinn.  Sameiginlegt námskeið sem þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu fyrir samstarf á vettvangi slyss, þar sem útkallsaðilarnir hafa sameiginlegan skilning á verkefninu, nálgast það á sama hátt og verklag allra er eins.“ 

Um þrjátíu starfsmenn SHS munu hafa réttindi til þess að stunda leitar- og björgunarköfun að lokinni afgreiðslu Siglingastofnunar.


Prentvæn útgáfa printer