
Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu mættust á íshokkívellinum í Skautahöllinni í Laugardal í gær, en leikurinn markaði upphaf hins árlega árveknisátaks Krabbameinsfélagsins, Mottumars.
Mottumars er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um krabbamein í körlum, en í þessum mánuði keppast íslenskir karlmenn um að safna sem myndarlegastri mottu, yfirvaraskeggi, til þess að minna á málefnið. Jafnframt er um fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins að ræða þar sem karlar safna áheitum um leið. Féð sem safnast verður notað til þess að efla forvarnir, fræðslu, rannsóknir og ráðgjöf.
Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, leiddu lið sín á svellinu í harðri baráttu sem lauk með gullmarki lögreglumanna í framlengdum leik.