Hátt í tuttugu starfsmenn SHS söfnuðu áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu sl. laugardag, þegar þeir hlupu 10 km með hjólastólsbundnum þátttakendum. Flestir slökkviliðs- og sjúkraflutningamannanna voru í slökkvi- eða sjúkraflutningagöllum í hlaupinu.
Starfsmenn SHS hafa hlaupið með hreyfihömluðum í Reykjavíkurmaraþoni mörg undanfarin ár. Voru þeir meðal þeirra fyrstu sem hófu að safna áheitum í tengslum við hlaupið, en áheitin renna til líknarfélags Brunavarðafélags Reykjavíkur.