Fréttir

26. maí 2011 |
Nokkur slökkvilið hafa nú komið til aðstoðar á öskusvæðið. Slökkviliðin á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Hvolsvelli komu að hreinsunarstarfinu í gær og fram eftir kvöldi. Menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Brunavörnum Suðurnesja og Brunavörnum Árnessýslu mættu á staðinn i gærkvöldi og gistu á svæðinu i nótt. Slökkviliðið á Höfn bættist í hópinn i morgun og í dag koma til viðbótar menn og búnaður frá Isavia.
24. maí 2011 |
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast frá gosinu í Grímsvötnum aðfararnótt 23. maí. Þá voru mæligildi svifryks há. Reikna má með að mæligildin komi til með að sveiflast áfram. Öskufall á höfuðborgarsvæðinu var samt ekkert í líkingu við það sem hefur verið fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstímum í umferðinni, þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni gosaska sem þyrlast upp.
01. mars 2011 |

Mottumars 2011, árveknisátaki Krabbameinsfélagsins, var ýtt úr vör í Skautahöllinni í Laugardal í gær með íshokkíleik.  Þar áttust við galvaskir slökkviliðs- og lögreglumenn.   

 


01. mars 2011 |

Fimmtán starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Ríkislögreglustjóra og Landhelgis-gæslu Íslands útskrifuðust á föstudaginn af námskeiði til B-réttinda kafara, leit og björgun.  Um þrjátíu starfsmenn SHS munu því hafa réttindi til þess að stunda leitar- og björgunarköfun að lokinni staðfestingu Siglingastofnunar.


12. janúar 2011 |

Slökkviliðið barðist við mikinn sinubruna í Vatnsmýrinni í gærkvöldi.  Víða á höfuðborgarsvæðinu er hætt við sinubruna vegna veðurskilyrða.