Ákvörðun um meðfylgjandi verklagsreglur eru byggðar á reglugerðum skotelda nr. 952/2003, og leiðbeiningum Brunamálastofnunar nr. 108.1/2008 um sölu og lagerhúsnæði skotelda.
Með umsókn til slökkviliðsstjóra skal skila inn teikningu A3 af fyrirkomulagi sölu og lagers skotelda. Þar skulu a.m.k. koma fram eftirfarandi atriði:
- Fyrirkomulag sölustaðar og lagers skotelda:
- Brunahólfun og brunatæknilegur búnaður.
- Fyrirkomulag flóttaleiða, þ.m.t. opnunarbúnaður og mesta fjarlægð í þær.
- Slökkvibúnaður og staðsetning hans.
- Staðsetning og fyrirkomulag sölubirgða í hillum.
- Önnur starfsemi í byggingunni.
- Nálægar byggingar og starfsemi.
- Brunavarnir sölustaðar/lagers og brunahólfun að nærliggjandi starfsemi.
- Brunavarnalýsing sem lýsir öllum brunavörnum staðarins.
- Fyrirkomulag sölusvæðis og skipting milli svæðis viðskiptavina og starfsmanna.
- Viðbragðsáætlun vegna hættuástands.
Söluaðili skal láta gefa út ofangreinda teikningu sem verður þá skjal viðkomandi sölustaðar og lagers.
Uppdrátturinn skal hljóta samþykki hjá SHS sem áritar hann til staðfestingar um samþykki.
Hér að neðan má nálgast verklasreglurnar, sýnishorn af teikningu og grunnmyndir fyrir teikningar á pdf formi.
Einnig skal fylgja með:
- Samþykki allra húseigenda í samræmi við lög um fjöleignahús nr. 26/1994.
- Samþykki tryggingarfélags.
- Staðfesting á úttekt brunaviðvörunarkerfis.
- Staðfesting á virkni út- og neyðarlýsingar.
- Á lagerum og sölustöðum skal vera til staðar viðeigandi slökkvibúnaður settur upp í samráði við forvarnasvið SHS.
Kröfur og viðmið:
- Magn skotelda á sölustað má ekki vera meira en svo að það komist fyrir í hillum á sölustað.
- Allur söluvarningur skal geymdur í hillum og vera allur sjáanlegur viðskiptavinum.
- Hillur skulu vera úr óbrennanlegum efnum.
- Hillur skulu ekki vera hærri en 2,5 metrar og dýpt 1,2 metrar, að meðtöldum skoteldum.
- Ekki skal vera tenging við stigahús eða flóttaleiðir frá annarri starfsemi (t.d. efri hæðum) í byggingunni, nema um brunastúku eða þar sem hurð að flóttaleið þolir mekanískt álag (M-krafa), t.d. með EI60-CSm stálhurð.
- Brunahólfun sölustaðar að aðliggjandi rýmum skal vera a.m.k. EI60, með yfirborðsklæðningu í flokki I. Veggir skulu byggðir á viðurkenndan máta og vera naglfastir.
- Byggingin /sölustaður (á ekki við um stakstæða sölustaði, t.d. gáma) skal vera búin sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi tengdu viðurkenndri vaktstöð.
- Í sölu og lagerhúsnæði skal vera út og neyðarlýsing í samræmi við byggingarreglugerð nr. 441/1998 og IST EN 1838
Ekki er heimilt að vera með sölustaði við eftirfarandi aðstæður:
- Í byggingu, sem inniheldur íbúðir (samþykktar eða ósamþykktar) eða þar sem fólk gistir.
- Í byggingu hærri en 5 hæðir (fer eftir starfsemi).
- Í byggingu sem inniheldur samkomusal, þ.e.a.s hann má ekki vera í notkun á sama tíma og skoteldar eru í byggingunni.
- Í stærra brunahólfi en 500 m2 (skoðað í samhengi við brunahönnun).
- Á stað þar sem geymd eru hættuleg efni.
- Á lóðum bensínstöðva.
- Annars staðar þar sem starfsemin er talin mynda hættu fyrir fólk, eignir, umhverfi eða vegna björgunarstarfsemi eða samfélagsöryggis (t.d. vegna samgangna).
Öryggisatriði:
- Verkstjórar/sölustjórar skulu hafa lágamarksþekkingu í viðbrögðum við hættuástandi.
- Verkstjóri kynnir starfsfólki sínu uppdrátt þar sem fram kemur m.a. neyðarbúnaður og viðbragðsáætlun.
- Mönnuð vakt sölustaðar eða lagers skal ekki staðsett innandyra á sölustað eða lager utan hefðbundins sölutíma. Unnið í samráði við SHS.
- Flóttaleiðir frá sölustað og lager eru í samræmi við brunavarnauppdrátt.
- Um sölu úr skúrum eða gámum gildir reglugerð um skotelda 952/2003.
- Nota má viðurkennda stálgáma til geymslu sölulagers við sölustað. Hann skal þannig staðsettur að ekki skapi hættu vegna sambruna eða rýmingar. Staðsetning gáma skal ákveðin í samráði við SHS.
Lagerbyggingar fyrir skotelda:
- Lager skal ekki vera í fjölnota byggingum.
- Í lagerhúsnæði skal vera brunaviðvörunarkerfi tengt vaktstöð, kerfið skal vera vírað.
- Um húsnæði sem ætlað er sem lager fyrir skotelda skal gera sérstaka brunahönnun og áhættumat. Slíkt mat skal liggja fyrir, samþykkt af SHS, í síðasta lagi 1. desember ár hvert fyrir skoteldalagera.
- Hægt er að víkja frá einstökum viðmiðum ef sýnt er fram á með brunatæknilegum rökstuðningi og áhættugreiningu, að jafngildu/ásættanlegu öryggi sé náð með öðrum hætti.