Skoteldar

Ákvörðun um meðfylgjandi verklagsreglur eru byggðar á reglugerðum skotelda nr. 952/2003, og leiðbeiningum Brunamálastofnunar nr. 108.1/2008 um sölu og lagerhúsnæði skotelda.
Með umsókn til slökkviliðsstjóra skal skila inn teikningu A3 af fyrirkomulagi sölu og lagers skotelda. Þar skulu a.m.k. koma fram eftirfarandi atriði:

  • Fyrirkomulag sölustaðar og lagers skotelda:
  • Brunahólfun og brunatæknilegur búnaður. 
  • Fyrirkomulag flóttaleiða, þ.m.t. opnunarbúnaður og mesta fjarlægð í þær.
  • Slökkvibúnaður og staðsetning hans. 
  • Staðsetning og fyrirkomulag sölubirgða í hillum.
  • Önnur starfsemi í byggingunni.
  • Nálægar byggingar og starfsemi. 
  • Brunavarnir sölustaðar/lagers og brunahólfun að nærliggjandi starfsemi. 
  • Brunavarnalýsing sem lýsir öllum brunavörnum staðarins.  
  • Fyrirkomulag sölusvæðis og skipting milli svæðis viðskiptavina og starfsmanna.
  • Viðbragðsáætlun vegna hættuástands.

Söluaðili skal láta gefa út ofangreinda teikningu sem verður þá skjal viðkomandi sölustaðar og lagers.

Uppdrátturinn skal hljóta samþykki hjá SHS sem áritar hann til staðfestingar um samþykki.

Hér að neðan má nálgast verklasreglurnar, sýnishorn af teikningu og grunnmyndir fyrir teikningar á pdf formi.