Logi og Glóð

Logi og Glóð fræða leikskólabörn um eldvarnir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins heimsækir elstu börnin í leikskólunum á svæðinu árlega til þess að fræða börnin og fjölskyldur þeirra um eldvarnir. Slökkviliðsmenn hafa slökkviálfana Loga og Glóð sér til halds og trausts í þessum heimsóknum en þau eru sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðsins í verkefninu. Hafa heimsóknirnar mælst vel fyrir. Tilgangur þeirra er einnig að tryggja traustar eldvarnir í leikskólunum sjálfum í samvinnu við starfsfólk.

Verkefnið er umfangsmikið því 155 leikskólar eru á höfuðborgarsvæðinu og börnin í elsta árganginum eru um 2.700 talsins.

Verkefnið fór af stað vorið 2007. Markmið þess er þríþætt: 

  1. Að tryggja að eldvarnir í leikskólunum verði ávallt eins og best verður á kosið. 
  2. Að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað.
  3. Að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki.

Við upphaf verkefnisins gera aðilar með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu og SHS afhendir ýmis gögn sem tengjast verkefninu. Í samkomulagi um eldvarnir og fræðslu er kveðið á um hlutverk aðilanna.  

Hér að ofan getur þú skoðað gögn sem tenjgast Loga og Glóð með því að smella á myndirnar.