Flestir sumarbústaðir landsmanna eru fjarri öllum slökkviliðum, og eru langflestir byggðir úr timbri. Ef eldur kemur upp þá brenna þeir mjög hratt, því er mjög mikilvægt að eldvarnir séu í lagi og hægt sé að forða sér á öruggan máta út úr bústaðnum.
Munið að hafa viðeigandi slökkvitæki og eldvarnateppi. Þar sem gas er notað til eldunar og/eða hitunar þarf að vera rétt gengið frá lögnum frá gaskút að tækjum. Munið nauðsyn gasskynjara. Reykskynjari ætti alltaf að vera þar sem sofið er.
Gas- og kolagrill skaltu eingöngu að nota utandyra.
Fyrir utan eldhættuna myndast súrefnissnauðar lofttegundir sem geta reynst hættulegar ef loftræsing er ekki fullnægjandi. Hafðu grillið ekki upp við glugga eða við opnar dyr. Grillið á að standa á sléttu og láréttu undirlagi. Gættu þess að börn komi ekki of nærri. Geymdu eldfærin á öruggum stað.
Flugeldar eru hættulegir ef ekki er farið eftir þeim leiðbeiningum sem þeim fylgja. Flugeldar eru ekki fyrir börn og hafa skal í huga aldurstakmörk, bæði vegna kaupa og notkunar á þeim.
Skógarhlíð 14 - 105 Reykjavik - Sími : 528-3000 - Símbréf : 528-3001 - Vefpóstur : shs@shs.is