Atvinnulífið

Okkar annað heimili

Eldur veldur árlega miklu tjóni á heilsu og eignum fólks og fyrirtækja.  Ekki þarf mikinn eldsvoða til að rekstur stöðvist og reynslan sýnir að rekstrarstöðvun getur haft afdrifaríkar afleiðingar og valdið miklu meira tjóni en eldsvoðinn sem slíkur. Mörg dæmi eru um að fyrirtæki hafi aldrei borið sitt barr eftir eldsvoða.

Oft er vinnustaðurinn okkar annað heimili og líf fólks og afkoma fjölskyldna er undir því komið að fyrirtækið sé í góðum rekstri. Það eru því ekki eingöngu hagsmunir eiganda fyrirtækis að rekstrinum sé ekki ógnað vegna ónógra eldvarna heldur þurfa allir að vera samstíga í því verkefni.  Fyrirtæki eru að sjálfsögðu mismunandi að stærð og starfsemin kallar á mismunandi áætlanir til að koma í veg fyrir og bregðast við hverslags hættuástandi.

Við getum ekki leyft okkur að segja að ekkert komi fyrir hjá okkur, vegna þess að staðreyndin er sú að á undanförnum áratugum hafa tugir manna farist í eldsvoðum á Íslandi. Enn fleiri verða fyrir andlegu og líkamlegu tjóni, margir til frambúðar.

Gangi ykkur vel!