Viðbrögð og forvarnir

Viðbrögð og forvarnir

Forvarnir eru mikilvægur þáttur í því að takast á við vá.  Upplýsingar og leiðbeiningar um forvarnir og viðbrögð við hvers kyns vá er að finna á blaðsíðu 14 í Símaskránni og á heimasíðu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, almannavarnir.is.  Almenningur er hvattur til þess að kynna sér leiðbeiningarnar vel.

Almennar leiðbeiningar:
Á heimilum og vinnustöðum ætti fólk að ræða saman um hugsanlegar hættur, ræða tryggingamál, skoða útgönguleiðir hússins og kanna staðsetningu öryggisbúnaðar.  Nám í skyndihjálp er hagnýtt og getur bjargað mannslífum.  Rauði kross Íslands veitir upplýsingar um námskeið fyrir almenning og fyrirtæki.

Mikilvægt er að kunna að meðhöndla öryggisbúnaðinn. Meðal öryggisbúnaðar á heimilum og vinnustöðum ætti að vera: 

  • slökkvitæki 
  • reykskynjarar 
  • brunastigar eða brunakaðlar til undankomu af efri hæðum húsa 
  • verkfæri, svo sem hamar, sög, töng, rörtöng, skrúfjárn, skófla, öxi og kúbein


Heppilegt er að koma eftirtöldum búnaði fyrir í viðlagakassa sem allir þurfa að vita hvar geymdur er: 

  • sjúkrakassa 
  • vasaljósi 
  • útvarpi með rafhlöðum 
  • bæklingi um skyndihjálp 
  • lista yfir mikilvæg símanúmer (nákominna, þjónustuaðila o.fl.) 
  • neyðaráætlun fjölskyldunnar/vinnustaðarins

Ræðið og æfið viðbrögð við hættuástandi og látið börn taka fullan þátt í þeim.

Nánari upplýsingar:
Á blaðsíðu 14 í Símaskránni og á almannavarnir.is.