Hlutverk SHS

Hlutverk SHS

Hlutverk slökkviliðsins í almannavarnakerfinu er fjölþætt.  Því er ætlað að leiða stjórnun og útfærslu björgunaraðgerða ásamt því að taka þátt í aðgerðastjórn.  Meðal verkefna liðsins eru björgun úr rústum, slökkvistarf og aðhlynning og flutningur slasaðra.  Í þessu skyni hefur slökkviliðið yfir að ráða góðum búnaði og sérþjálfuðum starfsmönnum.
Aðstoð SHS hefur ekki verið bundin við atburði sem verða á starfssvæði þess.  Þannig fóru fjölmargir starfsmenn slökkviliðsins til björgunarstarfa á Vestfjörðum þegar snjóflóð féllu á Súðavík og Flateyri árið 1995 og gegndu mikilvægu hlutverki við björgunarstörfin.