Aðgerðastjórn starfar í umboði almannavarnanefndarinnar.
Hlutverk aðgerðastjórnar utan aðgerða er:
- að vinna viðbragðs- og aðgerðaáætlanir sem hún leggur fyrir framkvæmdaráð
- að halda æfingar, m.a. fyrir viðbragðsaðila
- að skipuleggja störf aðgerðastjórnar í stjórnstöð
- að skipuleggja störf stoðdeildar í stjórnstöð
- að samræma aðgerðir vegna stærri uppákomu á svæðinu
Hlutverk aðgerðastjórnar í aðgerðum er:
- að samræma aðgerðir og sjá um forgangsröðun þeirra og eftirfylgni
- að stjórna flutningi hjálparliðs og búnaðar um svæðið eftir því sem hjálparbeiðnir berast
- að skipa vettvangsstjóra ef fleiri eru en einn og sjá um öll samskipti við þá
- að sjá um samskipti við Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vegna aðgerða á svæðinu
- að sjá um alla skýrslugerð vegna heildaraðgerða
- að afla upplýsinga frá öðrum aðilum, t.d. veðurstofu og vísindastofnunum
- að koma tilkynningum til fjölmiðla og aðstandenda ef á þarf að halda í samráði við almannavarnanefndina
Í aðgerðastjórn eru skipaðir fulltrúar frá öllum viðbragðsaðilum:
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar, f.h. sveitarfélaganna
Landspítala, f.h. heilbrigðisþjónustunnar
Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 1
Rauða krossi Íslands á höfuðborgarsvæðinu
Auk þess getur aðgerðastjórn kallað til sín fleiri aðila eftir umfangi og eðli atburðar hverju sinni.