Stoðdeild

Stoðdeild

Hlutverk og verkefni stoðdeildar er að skapa grunn til að hægt sé að framkvæma ákvarðanir stjórnanda á vettvangi. Koma ákvörðunum stjórnanda á vettvangi í verk með leiðbeiningum, skipunum og upplýsingum. Fylgja eftir skipunum, leiðbeiningum og upplýsingum svo þessir þættir séu rétt framkvæmdir. Taka saman og útbúa skýrslur, yfirlit og kynningarefni. Skapa hagstæð starfsskilyrði fyrir stjórnendur.

Skipulag stoðdeildar
Yfirstjórn er í höndum deildastjóra stoðdeildar og  eru helstu verkefni hans:

  • að safna upplýsingum svo að hægt sé að meta stöðu og taka ákvarðanir
  • að meta þörfina á aðföngum 
  • að áætla björgunarstörf í smáatriðum, gera framvindu áætlun
  • að gefa skipanir, koma ákvörðunum og upplýsingum til þjónustueininga
  • að vinna með stjórnvöldum og öðrum ytri samstarfsaðilum
  • að fylgjast með og fylgja eftir að skipulag og aðgerðir gangi eftir.

Undir deildastjóra starfa 4 stoðdeildarmenn eða einn á hverri vakt. Þeir sinna daglegri þjónustu við varðliðið, þeir standa 12 tíma vaktir eins og aðrir í varðliði og því stoðdeildarmaður á vakt 24 tíma, allt árið um kring.