Hlutverk útkallssviðs er að vernda líf, heilsu, umhverfi og eignir samfélagsins þegar hætta steðjar að.
Helstu verkefni liðsins eru:
Skipulag sviðsins
Yfirstjórnun er í höndum sviðsstjóra og heyrir hann beint undir slökkviliðsstjóra. Verkefni hans felast í stefnumótun og ábyrgð á daglegum rekstri sviðsins. Sviðsstjóri útkallssviðs er jafnframt varaslökkviliðsstjóri.
Varðliðið
Á útkallssviði starfa um 120 manns. Allir starfsmenn hafa iðnmenntun eða aðra menntun sem nýtist í starfi, s.s. stúdentspróf. Á Kjalarnesi eru starfandi slökkviliðsmenn í hlutastarfi. Þá hefur verið gerður samningur við björgunarsveitina Kjöl um aðstoð þegar þörf er á. Sviðsstjóri útkallssviðs er brunaverkfræðingur, aðrir starfsmenn uppfylla menntunarkröfur liðsins og hafa einnig sótt önnur námskeið innan og utan liðsins, innanlands og erlendis. Sem dæmi má nefna námskeið slökkviliðsmanna í björgunarskólum í Svíþjóð og bráðatækninám í Bandaríkjunum. Allir starfsmenn á útkallssviði eru bæði með slökkviliðs- og sjúkraflutningamenntun.