Forvarnasvið

Forvarnasvið

Hlutverk forvarnasviðs er að tryggja sem best öryggi þitt gegn eldsvoða og afleiðingum hans. Til  þess notum við þá þekkingu sem við höfum aflað okkur með forvarnarstarfi, slökkvistarfi og með menntun
Meginverkefnin sem daglega eru unnin til að sinna þessu hlutverki eru þessi:

  • Fræðsla og ráðgjöf.
  • Skoðanir fjölbýlishúsa.
  • Eigið eftirlit fyrirtækja.
  • Eldvarnaeftirlit.
  • Umsögn um leyfisskylda starfsemi.
  • Þróun sviðsins og starfseminnar

Skipulag sviðsins
Starfsemi sviðsins er þríþætt. Yfirstjórnun er í höndum sviðsstjóra og heyrir hann beint undir slökkviliðsstjóra. Verkefni hans felast í stefnumótun og ábyrgð á daglegum rekstri sviðsins. Tæknideild sinnir sérhæfðum verkefnum á sviði stjórnunar, brunatækni og opinberrar stjórnsýslu. Í því felst m.a. samstarf við byggingarfulltrúa og eftirlit með brunahönnun mannvirkja, eftirlit með flóknum byggingum, og ráðgjöf þessu tengd. Eftirlitsdeild sinnir daglegu eldvarnaeftirliti og ráðgjöf. Til dæmis umsagnir um leyfisskylda starfsemi og eftirlit þeim tengt.
Með mönnun sviðsins er leitast við að tryggja breiða þekkingu starfsmanna, annaðhvort með viðeigandi tæknimenntun eða langri starfsreynslu úr slökkviliði. Sí- og endurmenntun tryggir viðhald þessarar þekkingar og að hún fylgi þróun þjóðfélagsins og þeim kröfum sem það gerir til okkar.