Starfssvæði

Starfssvæði
Starfssvæði SHS nær til sveitarfélaganna sjö sem standa sameiginlega að rekstri liðsins.  Þau eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Álftanes.  Liðið veitir þjónustu við Kjósarhrepp samkvæmt samningi og hefur skyldur um aðstoð við nærliggjandi sveitarfélög samkvæmt starfssamningum.  Starfssvæðið nær frá Hvalfjarðarbotni í norðri, til Straumsvíkur í suðri og Bláfjallasvæðisins í austri.  Íbúar á starfssvæðinu eru um 63 prósent landsmanna.
Slökkvibílar og sjúkrabílar eru staðsettir á stöðvunum í Skógarhlíð, á Tunguhálsi og í Skútahrauni.  Á hverri stöð eru fimm til sex menn allan sólarhringinn, einn stjórnandi og fjórir til fimm slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn.  Á Kjalarnesi eru slökkviliðsmenn í hlutastarfi.  Auk þess er stoðdeildarmaður á vakt í Skógarhlíð en hann stjórnar aðgerðum úr varðstofu 112.