Slökkvistöðvar slökkviliðsins eru fjórar talsins og eru dreifðar um höfuðborgarsvæðið. Slökkvibílar og sjúkrabílar eru staðsettir á stöðvunum í Skógarhlíð, á Tunguhálsi og í Skútahrauni. Hver stöðvanna þriggja er mönnuð 5 - 6 mönnum allan sólarhringinn, einum stjórnanda og 4 - 5 slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum. Á Kjalarnesi eru slökkviliðsmenn í hlutastarfi. Auk þess er stoðdeildarmaður á vakt í Skógarhlíð en hann stjórnar aðgerðum úr varðstofu 112.
Skógarhlíð
Í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð er aðalstöð SHS en þar eru einnig skrifstofur liðsins, Landhelgisgæsla Íslands, Neyðarlínan ohf., Slysavarnafélagið Landsbjörg og fjarskiptamiðstöð, almannavarnadeild, bílamiðstöð og alþjóðadeild ríkislögreglustjóra með aðsetur. Slökkvistöðin var tekin í notkun árið 1966 og tók hún við af stöðinni í Tjarnargötu. Í Skógarhlíð eru slökkvibílar, körfubíll, sjúkrabílar og búnaður leitar- og björgunarkafara liðsins. Köfunarflokkur SHS hefur aðsetur í Skógarhlíð.
Tunguháls
Slökkvistöðin í Tunguhálsi var tekin í notkun árið 1992. Þar eru slökkvibílar, sjúkrabílar, björgunarbátur og fjallabjörgunarbíll SHS. Landflokkur liðsins hefur aðsetur í Tunguhálsi og geymir björgunarbúnað sinn þar ásamt björgunarbíl flokksins.
Hafnarfjörður
Slökkvistöðin í Skútahrauni í Hafnarfirði var tekin í notkun árið 2002 og tók við af stöðinni við Flatahraun. Í Skútahrauni eru dælubílar, körfubíll, sjúkrabílar, gámar og gámabílar liðsins. Slökkvilið víða um heim eru farin að nýta kosti þess að vera með ýmsan sértækan búnað í gámum sem auðvelt er að koma á vettvang. SHS er eitt af þeim liðum sem hafa tileinkað sér gámanotkun og gegnir slökkvistöðin í Skútahrauni því hlutverki að sjá um gámana og gámabílana.
Kjalarnes
Slökkvistöðin á Kjalarnesi er mönnuð slökkviliðsmönnum í hlutastarfi en þar er dælubíll og dælur.