Starfsmannastefna

Markmið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins byggðasamlags er að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel þjálfuðu starfsfólki, sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi og getur þannig tekið virkan þátt í framtíð SHS í síbreytilegu umhverfi.

Lögð er áhersla á

  • að starfsmenn þekki hlutverk SHS og stefnu þess,
  • markviss vinnubrögð og frumkvæði í starfi,
  • skýra ákvarðanatöku,
  • hvetjandi starfsumhverfi,
  • að SHS sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem starfsfólk er búið undir krefjandi verkefni með markvissri og skipulegri þjálfun,
  • að hæfni ráði vali á starfsmönnum.

Við lögum okkur að breyttum kröfum, sem starfið gerir til okkar, svo sem vegna tæknilegrar og faglegrar þróunar og erum reiðubúin að þjálfa okkur til nýrra og breyttra verkefna.