Menntastefna

Menntastefna

Okkur er ljóst mikilvægi sí- og  endurmenntunar.  Til þess að fyrirtæki geti vaxið, þroskast og haldið stöðu sinni í síbreytilegu umhverfi er mikilvægt að við fáum tækifæri til að auka við þekkingu okkar og færni.  Við viljum að starfsmenn séu vel þjálfaðir og meðvitaðir um nýjungar í sinni starfsgrein þannig að SHS sé ávallt fremst á sínu sviði.  Við berum sjálf ábyrgð á því að fylgjast með nýjungum í starfsgrein okkar.

  • Við sýnum frumkvæði í skipulagningu símenntunar okkar og tökum virkan þátt í árlegri endurskoðun þjálfunaráætlunar okkar.  
  • Fræðsluþörf allra deilda er metin á hverju ári til að tryggja að menntun starfsmanna fyrirtækisins sé ekki eingöngu miðuð við einstaklinga deildarinnar, heldur jafnframt heildarinnar.  Stjórnendur miða áætlanir í fræðslumálum við framtíðarsýn SHS. 
  • Námskeiðs- og ráðstefnuumsóknir starfsmanna eru metnar með það í huga að námið nýtist SHS sem allra best. 
  • Við miðlum þekkingu þeirri sem við hljótum við endurmenntun til annarra starfsmanna fyrirtækisins með óformlegum eða formlegum hætti.