Starfsmenn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þiggja laun eftir almennum kjarasamningum þar sem ekki kemur fram launamunur milli kynja, sbr. kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga f.h. þeirra sveitarfélaga og byggðasamlaga, brunavarna sem hún hefur samningsumboð fyrir, þ.m.t. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Starfsþjálfun og endurmenntun stendur báðum kynjum jafnt til boða.
SHS leggur metnað sinn í að gera starfsmönnum kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu. Enn frekar verður unnið að því að auka sveigjanleika í skipulagningu á vinnu og vinnutíma þannig að tekið sé tillit til þarfa atvinnulífs og fjölskylduaðstæðna starfsmanna.
Kynferðisleg áreitni og einelti er ekki liðin hjá SHS. Á innra neti fyrirtækisins er að finna upplýsingasíðu um einelti og kynferðislega áreitni og leiðbeiningar fyrir starfsmenn.
Starfsmannastjóri fylgist með framgangi jafnréttisáætlunar. Tillögum að endurbótum á sviði jafnréttismála og öðrum athugasemdum sem tengjast þeim málum skal koma á framfæri við starfsmannastjóra SHS.