Ætlunarverk

Ætlunarverk
Ætlunarverk SHS er að sinna forvörnum og útkallsþjónustu á þjónustusvæðinu eins og best verður á kosið í eftirfarandi forgangsröð;
 
  • að bjarga lífi,
  • að afleiðingar af umhverfisslysum verði sem minnstar,
  • að bjarga eignum.

Eftirfarandi þættir hafa einnig lykiláhrif á forgangsröðun og viðbúnað liðsins:  

  • Þörf fyrir skjót viðbrögð svo að árangur náist.
  • Kostnaður með tilliti til þeirra hagsmuna sem í húfi eru.
Svo SHS megi takast ætlunarverk sitt þarf meðal annars
 
  • starfsmenn með fjölbreyttan bakgrunn þar sem búast má við verkfærni og verkviti sem nýtist starfseminni til framdráttar,
  • að nýta starfsfólk við mismunandi verkefni á hagkvæman hátt með samvinnu og samþættingu deilda,
  • að nýta fjárfestingarsjóð svo búnaður liðsins uppfylli ævinlega kröfur tímans.
 Allir starfsmenn bera sameiginlega ábyrgð á að ætlunarverkið nái fram að ganga, sama hvar þeir eru staddir í stjórnskipulagi.