Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur umsögn Brunamálastofnunar og samþykki sveitarstjórnar. Áætlunina skal endurskoða á fimm ára fresti. Leiðarljós brunavarnaáætlunar er markmið laga um brunavarnir nr. 75/2000, sem er að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit og viðbúnað við eldsvoðum og mengunaróhöppum á landi.
Markmið brunavarnaáætlunar er því eins og segir í 1. mgr. 13.gr. að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verkefni sem því eru falin með lögum þessum og reglugerðum samkvæmt þeim. Jafnframt er eitt af meginmarkmiðunum með brunavarnaáætlun að sveitarfélög skilgreini hvernig þau nái að uppfylla tilgreint þjónustustig.
Markmiðið með rekstri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs er því fyrst og fremst að bjarga lífi, umhverfi og eignum. Til að ná þessum markmiðum er starfsemi liðsins skipt í fjóra grundvallarþætti:
• að fyrirbyggja,
• að undirbúa,
• að grípa inn í atburðarás
• og endurbæta starfsaðferðir.