Nokkur slökkvilið hafa nú komið til aðstoðar á öskusvæðið. Slökkviliðin á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Hvolsvelli komu að hreinsunarstarfinu í gær og fram eftir kvöldi. Menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Brunavörnum Suðurnesja og Brunavörnum Árnessýslu mættu á staðinn i gærkvöldi og gistu á svæðinu i nótt. Slökkviliðið á Höfn bættist í hópinn i morgun og í dag koma til viðbótar menn og búnaður frá Isavia.
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu hafa verið misjöfn síðan aska tók að berast frá gosinu í Grímsvötnum aðfararnótt 23. maí. Þá voru mæligildi svifryks há. Reikna má með að mæligildin komi til með að sveiflast áfram. Öskufall á höfuðborgarsvæðinu var samt ekkert í líkingu við það sem hefur verið fyrir austan fjall og á Suðurlandi. Mælingar hafa sýnt hátt svifryk í lofti á höfuðborgarsvæðinu á álagstímum í umferðinni, þegar vindur er sterkur og jörð þurr. Er þar að einhverju leyti á ferðinni gosaska sem þyrlast upp.