Skipaeldar

Slökkvistörf í skipum

Þegar eldur kemur upp í skipi sem er á hafi úti skapast mjög hættulegar aðstæður sem bregðast þarf við. SHS hefur sinnt viðbrögðum við eldum í skipum í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Það fer þannig fram að slökkviliðsmenn eru fluttir ásamt búnaði sínum með þyrlum og eða skipum Landhelgisgæslunnar. Svo hefja þeir slökkvistörf og reyna að ráða niðurlögum eldsins og bjarga áhöfn skipsins. Eldur er hættulegur en að fara um borð í skip þar sem eldur er laus er enn hættulegra og því eru haldnar sérhæfðar æfingar sem miðast við eld í skipum til þess að þjálfa slökkviliðsmenn til að fást við slík verkefni.

  • Leiðbeiningar um slökkvistörf í skipum má nálgast hér.