Reykjavíkurflugvöllur

Reykjavíkurflugvöllur

Slökkviliðið sér um slökkvi- og björgunarstörf á Reykjavíkurflugvelli samkvæmt samningi við Flugmálastjórn. Á flugvellinum er mikil sérhæfing og hefur SHS þjálfað starfsmenn sína í þeim fjölmörgu störfum sem þeir gegna.
Flugmálastjórn á og rekur slökkvistöðina og allan stærri búnað á flugvellinum. En slökkviliðið sér um öll störf sem snúa að slökkviliðinu eins og: Bremsumælingar, slökkvistörf, sjóbjörgun við flugvöllinn og öll önnur björgunarstörf á svæðinu. Einnig er stór þáttur af starfinu eftirlit með flugvallasvæðinu, flugbrautum, aksturshliðum vallarins og brautarljósum.