Leturstaerd

Leturgerd

Bakgrunnur

Leturlitur



Tæki og búnaður
 

Búnaður í sjúkraflutningum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur yfir að ráða þrettán sjúkrabifreiðum. Þær eru ýmist af gerðinni Ford Econoline eða Mercedes Bens Sprinter. Rauði Kross Íslands á og rekur bifreiðarnar ásamt stærri sjúkrabúnaði, samkvæmt samningi RKÍ við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Allir bílar hafa sama búnað og er helsti búnaður sjúkrabíls: Hjartarafstuðtæki, súrefni, tæki til öndunarhjálpar, búnaður til lyfjagjafar, búnaður til að aðstoða við fæðingu, sáraumbúðir spelkur o.fl. Sjúkrabílarnir eru svo vel búinir búnaði, tækjum og mannafla að í raun og veru er um að ræða bráðamóttöku á hjólum.