Menntun sjúkraflutningamanna

Menntun sjúkraflutningamanna

Sjúkraflutningar snúast um líf og heilsu fólks.  Því er góð menntun og þjálfun sjúkraflutningamanna nauðsynleg.  Hjá SHS er mikið kapp lagt á menntun í sjúkraflutningum til þess að kunnátta og hæfni starfsmanna sé eins góð og mögulegt er hverju sinni.  Menntun sjúkraflutningamanna hjá SHS er fjórþætt:

  • Grunnmenntun, námskeið haldið af Sjúkraflutningaskólanum.
  • Framhaldsnám í sjúkraflutningum, svokallað neyðarflutninganám, haldið af Sjúkraflutningaskólanum.
  • Sérmenntun sem bráðatæknir, Paramedic.  Það er nám á háskólastigi og telur um 30 einingar í bóklegum tímum, 2,5 einingar í verklegum tímum og 15 einingar í starfsþjálfun á kennslusjúkrahúsi.  Námið fer fram í Pittsburgh í Bandaríkjunum.
  • Árleg sí- og endurmenntun, auk þess sem boðið er upp á ýmis styttri sérnámskeið sem fjalla þá um ákveðinn þátt í bráðaþjónustunni.

Allir starfsmenn liðsins fara í grunnnám sjúkraflutninga um leið og þeir eru ráðnir til starfa.  Eftir námskeiðið geta þeir hafið störf á sjúkrabifreið með reyndari sjúkraflutningamanni.  Eftir um þriggja ára starf og þjálfun eru starfsmenn sendir í framhaldsnám (neyðarflutninganám).  Allir starfsmenn SHS ljúka því námi svo það er lágmarksmenntun sjúkraflutningamanna liðsins eftir þriggja ára starf.  Í framhaldi af því býðst starfsmönnum reglulega að sækja um að komast í bráðatækninám, en það er auglýst sérstaklega.  Í lok árs 2007 eru 15 bráðatæknar í starfi hjá SHS.

Nánari upplýsingar um menntun sjúkraflutningamanna er að finna á heimasíðum Sjúkraflutningaskólans og Center of Emergency Medicine, Pittsburgh.