Öskufall

Leiðbeiningar vegna öskufalls

Taldar eru hverfandi líkur á því að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.  Það er fyrst og fremst vegna fjarlægðar höfuðborgarsvæðisins við eldstöðina, en einnig vegna þess að öskumagn úr gosinu hefur minnkað verulega frá upphafi þess.  Hins vegar eru örlitlar líkur á því að svokallað öskumistur berist til höfuðborgarsvæðisins og er þá einkum átt við truflun á skyggni vegna svifryks frá gosinu, þar sem það getur borist nokkuð langt.  Svifryk frá gosinu getur líka borist hingað í svo litlu magni að það sjáist ekki.

Umhverfisstofnun og heilbrigðiseftirlitin á höfuðborgarsvæðinu fylgjast grannt með loftgæðamælum á svæðinu, sem mæla svifryksmagnið.  Mælingar þessar eru birtar á heimasíðum umhverfisstofnunar og Reykjavíkurborgar.  Ef loftgæði á höfuðborgarsvæðinu versna af völdum svifryks frá Eyjafjallajökli, verða tilkynningar samstundis sendar fjölmiðlum, svo upplýsingar berist almenningi.  Ef tilkynnt hefur verið í fréttum um versnandi loftgæði, sem gætu valdið fólki óþægindum, er fólki bent á að kynna sér vel upplýsingar á vefsíðunum hér að neðan og í leiðbeiningabæklingunum hér að neðan.  Jafnframt er foreldrum skólabarna bent á að kynna sér leiðbeiningar vegna röskunar á skólastarfi vegna óveðurs, en þær leiðbeiningar gilda einnig í þessu tilviki.  Hafa ber í huga að einstaklingar sem hafa hjarta- eða öndunarfærasjúkdóma, augnsjúkdóma eða eru með linsur eru viðkvæmari en aðrir fyrir svifryki.

Gagnlegar vefsíður þar sem finna má nýjustu upplýsingar og leiðbeiningar um öskufall, öskufallsspár, loftmælingar og viðbrögð við öskufalli. Á heimasíðu Almannavarna birtast fréttatilkynningar frá Samhæfingarstöð Almannavarna og er fólki bent á að fylgjast með þeim og fréttum.

Leiðbeiningar til almennings um viðbrögð við öskufalli

Fréttatilkynning frá sóttvarnalækni föstudaginn 23. apríl 2010