Björgunarstörf

Margþætt björgunarhlutverk

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur margvíslegu þjónustuhlutverki að gegna við almenning og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þjónustan er að mestu leyti skilgreind í lögum og reglugerðum en er þó víðtækari en svo. Auk slökkvistarfa, sjúkraflutninga og forvarna er um að ræða:

  • Viðbrögð við umhverfismengun 
  • Verðmætabjörgun, meðal annars vegna vatnsleka 
  • Björgun vegna umferðaróhappa 
  • Almannavarnir 
  • Sjóköfun 
  • Björgun utan alfaraleiða 
  • Tilfallandi aðstoð við almenning

Starfsmenn liðsins gegna því mörgum ólíkum störfum sem krefjast fjölbreyttrar þjálfunar og tækjabúnaðar. Í liðinu eru menn sem eru þjálfaðir til aksturs, reykköfunar, sjóköfunar, sjúkraflutninga, eiturefnaköfunar, björgunar úr bílflökum með klippum, verðmætabjörgunar og annarra tilfallandi starfa.