Björgun úr bílflökum

Björgun úr bílflökum

Slökkviliðið sinnir klippuvinnu vegna umferðaslysa þegar þörf er á að klippa farþega út úr farartækjum. Þegar harðir árekstrar verða skemmast farartæki það mikið að ekki er hægt að ná fólki út nema með því að klippa farartækið utan af því. Til þessa hlutverks höfum við yfir að ráða sérstökum klippum, glennum og öðrum búnaði.