Mengunarvarnir í fyrirtækjum

Mengunarvarnir í fyrirtækjum

Fyrirtæki sem eru með framleiðslu, geymslu fyrir eða nota hættuleg efni ættu alltaf að setja upp ákveðna viðbragðsáætlun til að fara eftir ef slys á sér stað.
Þar ætti að vera tilgreint:

  • hvað hver á að gera
  • hvaða hlífðarbúnaður sé á staðnum
  • hver á að nota hann
  • hver á að sjá um rýmingu
  • hvernig á að láta alla vita
  • hver á að sjá um að loka öllum hurðum að svæðinu
  • hver á að láta 112/slökkvilið vita
  • hver á að sjá um samskipti við slökkviliðið er það kemur á vettvang o.s.frv.

Alltaf ætti að kynna öllu nýju starfsfólki um hættur þær sem eru til staðar í fyrirtækinu og ekki gera of lítið úr þeim möguleika að slys geti átt sér stað. Æfingar í notkun viðbragðsáætlunarinnar ættu að fara fram a.m.k. tvisvar á ári.
Mjög gott væri ef tiltækur væri listi með öllum þeim efnum sem eru innandyra með UN eða CAS númerum. Þennan lista mætti geyma í hólki við útidyr (og bakdyr) þar sem auðvelt væri að nálgast hann. Slíkan lista þyrfti að uppfæra reglulega ef hann á að koma viðbragðsaðilum að gagni.
Hversu hættulegt efnið er fer eftir ýmsu eins og hver efnasamsetningin er, hvernig það hagar sér við að komast í snertingu við vatn eða andrúmsloftið eða í hvaða magni og við hvaða aðstæður efnið er geymt, flutt eða notað.
Gastegundir dreifast á sekúndubroti eða á örfáum sekúndum í andrúmsloftinu. Vökvar þurfa ekki nema nokkrar mínútur til að dreifast á yfirborðinu en það getur tekið margar klukkustundir fyrir mengandi efni að komast í gegnum jarðveg.

Efnin hafa fjórar leiðir til að komast inn í líkamann.
• Gegnum öndunarfærin,
• Gegnum húð
• Gegnum munn
• Sprautast inn í líkamann
Leiðin sem algengust er til að valda skammtíma og langtíma heilsufarsvandamálum er upptaka í gegnum öndunarfærin.