Verklagsreglur þessar fjalla um tækifærisskemmtanir í byggingum sem hannaðar eru til annarra eða takmarkaðri nota en fyrirhuguð samkoma felur í sér. Markmið reglnanna er að tryggja líf og öryggi fólks á slíkum samkomum til jafns við samkomur sem haldnar eru í húsnæði sem er til þess hannað og byggt.
Verklagsreglur þessar eiga við þær byggingarleyfisumsóknir þar sem gerð er sérstök brunahönnun af öðrum en aðalhönnuði. Reglurnar fjalla um á hvern hátt málsmeðferð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) skuli háttað við yfirferð brunahönnunar-skýrslna og aðaluppdrátta brunahannaðra húsa og hvert samþykktarferli slíkra mála skuli vera.
Leiðbeiningar þessar eru fyrir eigendur/umráðamenn og leigjendur samkomusala. Þær eru hugsaðar til að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir gegn eldsvoða.
Slökkviliðslyftur eiga að vera til staðar í öllum háhýsum sem eru a.m.k. 23 metra há. Slökkviliðslyftum er ætlað að flytja slökkviliðsmenn og búnað þeirra örugglega á vettvang elds í háhýsi.