Eldmiðillinn

Hér á eftir verður fjallað um nokkur atriði sem hönnuðir velta oft vöngum yfir varðandi rýmingarleiðir úr íbúðarhúsum. Í sumum tilfellum getur verið um vafaatriði að ræða og ekki alveg ljóst hvað átt er við með reglugerðarákvæðunum og er þá gerð grein fyrir skilningi Eldvarnareftirlits á þeim atriðum.

Þegar lyftur eru í byggingum fylgja þeim ýmis vandamál vegna brunavarna. Eitt það alvarlegasta er að lyftustokkurinn getur borið reyk milli hæða og brunahólfa. Það er því nauðsynlegt fyrir hönnuði að huga vel að brunavörnum kringum lyftur.

Sambrunahætta milli brunahólfa vegna glugga í útveggjum.
Að undanförnu hefur töluvert verið byggt af húsum hér á landi með mjög stórum gluggum og dæmi eru um heilar húshliðar sem að mestu leyti eru gerðar úr gleri. Augljóst er að sambrunahætta milli brunahólfa sérstaklega milli hæða eykst umtalsvert eftir því sem meira er notað af gleri í útveggi á þennan hátt. Sambrunahætta er einnig að sjálfsögðu fyrir hendi ef stutt er á milli glugga í láréttu plani t.d. hornrétt í innhornum húsa og á gagnstæðum veggjum sem liggja nálægt hvor öðrum.

Algengt er að hanna sambýlishús með svokölluðum svalagöngum en þá er átt við að gengið sé úr stigahúsi sem ýmist er opið eða lokað út á opinn gang á hverri hæð og síðan inn í íbúðir. Þetta er gert að ég held til að íbúðir hafi yfir sér meiri sérbýlisbrag einnig er þetta trúlega ódýrari lausn en innigangur. Einhverra hluta vegna þá er orðið algengt sérstaklega nú í seinni tíð að hafa svalagangana lokaða og er það þá oftast gert með gleri. Hver er þá tilgangurinn með þessum svalagöngum?