Eldvarnir á heimilinu miða fyrst og fremst að því að tryggja líf og heilsu ef eldur skyldi koma upp. Í öðru lagi geta eldvarnir dregið verulega úr eignatjóni.
- Gakktu úr skugga um að rafbúnaður og raftæki séu ávallt í góðu lagi.
- Vertu viss um að réttur frágangur sé á gasbúnaði og gasskynjari í lagi.
- Vertu viss um að frágangur á eldstæðum (arnar, kamínur o.fl.) sé í lagi.
- Fylgdu ávallt varúðarreglum varðandi opinn eld og eldfæri
- Fylgstu reglulega með að reykskynjarar, flóttaleiðir og slökkvibúnaður sé í fullkomnu lagi.
- Rifjaðu reglulega upp þekkingu þína á fyrstu viðbrögðum.