Hlutverk SHS

Hlutverk SHS

Starfsmenn SHS heimsækja leikskólann tvisvar sinnum á ári hverju, samkvæmt samkomulagi við leikskólann. Í fyrri heimsókn fara fulltrúar SHS yfir ástand eldvarna með leikskólastjóra og öðru starfsfólki. Þegar verkefnið hefst með fyrstu heimsókn slökkviliðsins gera aðilar sem fyrr segir með sér samkomulag um eldvarnir og fræðslu. Þá afhendir SHS leikskólanum eftirfarandi gögn:

  • Möppuna Eldvarnir í leikskólanum sem inniheldur ýmis gögn um verkefnið og eigið eldvarnaeftirlit.
  • Veggspjald sem sýnir þau atriði sem aðgæta þarf mánaðarlega. Á því er gert ráð fyrir að merkt verði við þegar mánaðarlegt eftirlit hefur farið fram og hvenær rýmingaræfing var haldin. Nýtt veggspjald er afhent árlega. 
  • Viðurkenningarskjöl fyrir öll börnin í elsta árgangi leikskólans hverju sinni.

Í síðari heimsókn hitta slökkviliðsmenn elsta árganginn í leikskólanum, ræða við börnin um eldvarnir, segja þeim frá starfi slökkviliðsmanna og sýna þeim ýmsan búnað. Þá afhendir SHS þessi gögn:

  • Hvert barn fær möppuna Slökkviliðið mitt. Í henni eru verkefni fyrir börnin og skilaboð til foreldra. Gert er ráð fyrir að börnin vinni verkefnin í leikskólanum en taki möppuna svo með heim með viðurkenningarskjalinu í.

Hér að ofan getur þú skoðað gögn sem tenjgast Loga og Glóð með því að smella á myndirnar.