Samkomulag um eldvarnir og fræðslu er undirritað í fyrstu heimsókn slökkviliðsins og fer það á vegg við inngang á allar deildir leikskólans svo foreldrum sé ljós tilvist þess og geti kynnt sér efni þess. Samkvæmt samkomulaginu sér leikskólinn til þess að eldvarnir séu ævinlega í lagi. Í því skyni framkvæmir leikskólinn eigið eldvarnaeftirlit mánaðarlega samkvæmt gátlista. Ennfremur gerir leikskólinn rýmingaráætlun og æfir rýmingu árlega samkvæmt leiðbeiningum. Gert er ráð fyrir að börnin í elsta árganginum taki þátt í mánaðarlegu eftirliti ásamt starfsfólki.
Þegar starfsmenn SHS heimsækja leikskólann öðru sinni og síðan árlega upp frá því sýnir leikskólinn fram á að mánaðarlegt eftirlit hafi farið fram og rýming hafi verið æfð á undangengnu ári, eða frá síðustu heimsókn. Enn fremur leggur leikskólinn þá fram umbeðin gögn.
Þegar slökkviliðsmenn koma í síðari heimsókn sér leikskólinn um að börnin skilji og leysi verkefnin í möppunni Slökkviliðið mitt og taki hana síðan með sér heim til að sýna foreldrum og forráðamönnum.
Hér að ofan getur þú skoðað gögn sem tenjgast Loga og Glóð með því að smella á myndirnar.