Hlutverk opinbers eldvarnaeftirlits er að tryggja eins og best verður á kosið að eldvarnir bygginga og þeirrar starfsemi sem í þeim er sé í viðunandi horfi. Í þessu felst fyrst og fremst að gæta almannahagsmuna, að þú og þínir geti treyst á að lágmarksöryggi sé fyrir hendi, hvort heldur sem dvalið er á vinnustað eða í skóla, verslunum, samkomuhúsum eða öðrum opinberum stöðum.
Þetta firrir engan þeirri ábyrgð sem lög kveða á um að hver og einn beri á sínum eignum og athöfnum. Opinbert eftirlit getur heldur aldrei komið í stað þíns eigin eftirlits með því sem þú gerir og þeim mannvirkjum sem þú hugsanlega átt eða ræður yfir. Þú ert þarna alltaf en eldvarnareftirlitið getur aðeins komið heimsókn. Opinbert eftirlit getur aldrei verið nema takmarkað og á heldur ekki að vera öðruvísi. Því er brýnt að starfinu sé forgangsraðað þannig að sem bestur árangur náist.