Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem eiga að vera á hverju heimili. Skerandi vælið í þeim getur bjargað mannslífum. En til þess þurfa þeir að vera nægjanlega margir, rétt staðsettir, vera af réttri gerð, vera í lagi og hafa góða rafhlöðu.
Staðsettu reykskynjarana ávallt eins hátt uppi eins og hægt er vegna þess að reykur stígur upp. Staðsetjið þó aldrei reykskynjarana í kverkinni milli lofts og veggjar, vegna þess að. u.þ.b. 25 cm svæði niður á vegginn eða út á loftið er oft á tíðum reyklaust. Forðist að setja reykskynjara á það svæði. Í risi eða á hallandi lofti skal staðsetja skynjarana eins ofarlega og hægt er.Fjórðungur reykskynjara virkar því miður ekki vegna þess að einhver bilun er í þeim eða að í þá vantar rafhlöðuna.
Hafðu fyrir reglu að prófa reykskynjarana þína einu sinni í mánuði. Settu nýja rafhlöðu í reykskynjarann a.m.k. einu sinni á ári. Ef reykskynjarinn gefur frá sér stutt hljóð á u.þ.b. 1/2 mínútu fresti, skaltu skipta um rafhlöðu strax, því það er merki um að rafhlaðan sé að verða tóm.