Kerti og kertaskreytingar

Kerti og kertaskreytingar

Tryggðu að þú verðir ekki fyrir tjóni vegna elds af völdum kerta og kertaskreytinga, þú þarft nauðsynlega að umgangast þau af mikilli varúð.

  • Veldu kerti sem þú hefur góða reynslu af.
  • Festu þau tryggilega á eldtrega, stöðuga undirstöðu (stjaki, borð).
  • Staðsettu þau ekki of nærri hitagjafa t.a.m. miðstöðvarofni eða sjónvarpi
  • Staðsettu þau ekki nærri efnum sem auðveldlega getur kviknað í (t.d. gardínur í glugga).
  • Fylgstu með kertunum og slökktu tímanlega á þeim.
  • Eldverðu skreytingar, slökktu samt á kertum tímanlega þrátt fyrir eldvörnina.
  • Farðu aldrei frá logandi kerti.
  • Hafðu slökkvibúnað við höndina.
  • Varastu að láta börn komast í eldfæri eða logandi kerti.

Kertaljós
Kertaljós setja skemmtilegan svip á heimili manna í skammdeginu og þau eru mikið notuð á aðventunni. Algengt er hins vegar að fólk verði fyrir miklu tjóni vegna elds af völdum kerta og kertaskreytinga og því er nauðsynlegt að umgangast þau af mikilli varúð. Sú einfalda regla gildir í því sambandi að aldrei á að yfirgefa herbergi þar sem logar á kerti. Úrval kerta er fjölbreytt og hafa sum þeirra reynst varhugaverð, til dæmis kerti sem eru húðuð með gylltu eða silfurlituðu efni því dæmi eru um að kviknað hafi í húðunarefninu. Ílát sem kerti hafa verið steypt í hafa einnig reynst varasöm. Þá geta sprittkerti valdið hættu og þess eru dæmi að þau hafi gosið.

Umgengni við kertaljós

Kerti brenna mishratt en stundum er brennslutíma getið á umbúðum. Veldu kertastjaka úr hitaþolnu efni og gætið þess að kertið sé vel skorðað í stjakanum. Húsgagnið sem kertastjaki eða kertaskreyting stendur á verður að þola hita og vera stöðugt. Hafðu aldrei kerti þar sem trekkur er og gætið þess að hafa ekki logandi kerti í gluggakistu þar sem gluggatjöld blakta. Börn eiga aldrei að vera ein í herbergi þar sem logar á kerti. Ekki staðsetja kerti of nálægt hitagjöfum á borð við miðstöðvarofna eða arineld. Logandi kerti á ekki að standa ofan á raftæki.

Jólaskreytingar

Mikill eldsmatur getur verið í aðventukrönsum og jólaskreytingum. Síðustu ár hafa æ fleiri nýtt sér þau úrræði sem í boði eru til þess að draga úr eldhættu vegna kransa og skreytinga. Það á að vera liðin tíð að kerti séu sett hlífðarlaus niður í blóma- og greniskreytingar. Hafðu kertaskreytingar á undirlagi sem ekki getur kviknað í. Úðaðu eldvarnaefni yfir skreytingar. Slíkur úði hefur gefið góða raun og fæst í helstu blómaverslunum. Unnt er að fá ýmsar gerðir kertastjaka og íláta fyrir kertin. Hví ekki að leyfa þeim að njóta sín í stað þess að fela með skreytingum? Mundu að fara aldrei frá logandi kertaljósi.

Hér má sjá dæmi um slæm kerti.